Greinar

Á morgun segir sá lati!

Haukur Guðjónsson Haukur Guðjónsson
28. maí 2010 1 mín lestíð

Ég hef mikið orðið var við að fólk er hrætt við að tala um hugmyndir sínar og reynir helst að geyma þær inn í læstum skáp, þar sem enginn mun nokkurn tímann sjá þær. Staðreyndin er sú að hugmynd er einskis virði án aðgerða. Skiptir engu máli hversu góð hugmyndin þín er, þá er hún einskis virði fyrr en hún er orðin að veruleika. Það er því í raun engin hætta á að verðmætum verði stolið frá ykkur þegar þið spjallið um hugmyndina, þar sem það eru engin raunveruleg verðmæti í henni. Meiri hætta fylgir því að byrja ekki að framkvæma hugmyndina – ef þú hefur fengið þessa hugmynd, þá er nokkuð líklegt að einhver annar eigi eftir að fá nákvæmlega sömu hugmynd ef þið bíðið með hana nógu lengi.

Mín ráðlegging til ykkar er því sú að ef þið eruð ekki byrjuð að skrifa viðskiptaáætlun og vinna með hugmynd ykkar, þá eruð þið strax komin á eftir áætlun, og ef þið gerið ekki eitthvað strax í dag, er líklegt að hugmynd ykkar falli í gleymsku tímans.

Framkvæmið!

Haukur Guðjónsson

Frumkvöðull í meira en 20 ár. Stofnandi 7 fyrirtækja og Frumkvöðlar-samfélagsins. Skrifar um ferðalagið — gott og illt.

Meira um Hauk →

Fáðu nýtt efni beint í pósthólfið

Ég sendi út þegar ég hef eitthvað þess virði að deila. Engin ruslpóstur, aldrei.