Allt sem þú þarft til að stofna fyrirtæki — farið yfir öll grundvallaratriði á mannamáli af einhverjum sem hefur gert þetta sjálfur.
ATH: Flest stéttarfélög veita 90–100% styrk fyrir þessu námi!
Engar áhyggjur — á námskeiðinu förum við yfir alla þætti varðandi stofnun fyrirtækja og gerum ferilinn bæði einfaldari og auðskiljanlegri.
Ég man ennþá hvað mér fannst það erfitt að stofna mitt fyrsta fyrirtæki — langir dagar og svefnlausar nætur. Ég vildi óska þess að ég hefði haft einhvern til að leiðbeina mér í gegnum þennan feril. Það er ástæðan fyrir því að ég fór sjálfur að kenna stofnun fyrirtækja. Á þessu námskeiði mun ég sýna þér með einföldum hætti að það er bæði auðvelt og gefandi að stofna eigið fyrirtæki.
Þessi hluti felst í því að átta sig á afhverju þú ert að þessu og hvernig þú vilt byggja upp fyrirtækið þitt. Þetta er grunnurinn að því að ná raunverulegum árangri í rekstri — og það sem margir reyndir frumkvöðlar vildu óska að þeir hefðu vitað frá byrjun.
Hvernig er hægt að sannreyna viðskiptahugmyndina og vita hvort þú sért á réttri leið. Það eru ýmsar leiðir til að átta sig á því hvort það sé eitthvað vit í hugmyndinni — stundum er betra að athuga það áður en lengra er farið.
Við förum í gegnum allan ferilinn við að stofna einkahlutafélag frá A–Ö, skref fyrir skref. Þú munt aldrei aftur vera í vafa um hvernig þú stofnar fyrirtæki.
Helstu atriði varðandi rekstur fyrirtækja — virðisaukaskattur, launatengd gjöld, launagreiðslur, góðar bókhaldsvenjur og margt fleira.
Allar helstu leiðir til að fjármagna fyrirtæki — kostir og gallar hverrar aðferðar. Þú munt átta þig á hvaða leiðir þú vilt skoða nánar og hvaða leiðir betra væri að sleppa.
Góð ráð fyrir minni fyrirtæki um hvernig best er að byrja og hvar peningum er best varið. Vefsíðugerð, samfélagsmiðlar, sölumál o.fl.
Rúsínan í pulsuendanum. Ómetanlegir punktar sem geta sparað mörgum mikinn tíma og pening. Stundum er gott að læra af mistökum annarra svo maður þurfi ekki að gera þau sjálf(ur).
Átta íslenskir frumkvöðlar deila einlægum reynslusögum sínum af því að stofna og byggja upp fyrirtæki. Myndbandsupptökurnar eru alls 4 klukkustundir og hvergi annars staðar fáanlegar.
Viðtal við bókara þar sem við ræðum hvernig best er að starfa með bókhaldþjónustu. Bókarinn svarar einnig algengum spurningum um stofnun og rekstur fyrirtækja.
„Þetta námskeið gaf mér orku og vilja í að framkvæma draumana mína sem tengjast rekstri, ég fékk fullt af góðum ráðum sem ég bjóst ekki við, mæli óendalega með þessu námskeiði þar sem það er farið mjög vandlega og skýrt yfir hluti."
„Alveg hreint ótrúlegt magnið af upplýsingum sem koma fram á þessu stutta námskeiði. Ég þekkti engan í fyrirtækjarekstri en núna líður mér eins og ég viti allt sem ég þarf að vita. Námskeiðið gerði það að stofna fyrirtæki að raunhæfu markmiði."
„Haukur er frábær kennari, einlægur, sem gat útskýrt hvernig allt fer fram á „mannamáli". Lærði heilmikið og frábært að fá gesti líka í heimsókn til að læra af þeim. Mæli 100% með."
„Ég eindregið mæli með þessu námskeiði. Mér finnst Haukur fara vel í efnið og útskýra það á mjög skiljanlegan og rólegan máta. Hann tekur fyrir öll viðeigandi málefni og veit hvað á að kafa djúpt í."
„Þetta er fínt námskeið sem gefur góða mynd af því hverju þarf að huga að í upphafi atvinnnurekstrar. Að mínu mati er þetta góð fjárfesting fyrir þá sem eru að hugsa um að stofna eigið fyrirtæki."
„Þetta er algjörlega frábært námskeið! Staðfestir flest sem ég hef verið að hugsa og kemur líka með fleiri góða punkta sem ég hafði ekki pælt í."
Haukur býr yfir tveggja áratuga reynslu í frumkvöðlastarfi og hefur sjálfur stofnað 7 fyrirtæki í tveimur heimsálfum og þremur löndum.
Hann hefur verið virkur þátttakandi í að byggja upp frumkvöðlaumhverfið á Íslandi og kenndi sitt fyrsta námskeið í stofnun fyrirtækja árið 2009 — upphaflega sem frítt námskeið til að hjálpa þeim sem höfðu farið illa út úr efnahagshruninu 2008.
Síðan þá hefur hann kennt, leiðbeint og mentorað hundruð frumkvöðla bæði hér heima og í Norður-Ameríku, auk þess sem hann hefur verið virkur fyrirlesari og greinahöfundur á Frumkvöðlar.is.
Skráðu þig á póstlistann til að fá tilkynningu þegar skráning opnar.
Sjá öll námskeið