Heilsdags staðnámskeið á Hilton Nordica Reykjavík. Allt sem þú þarft að vita til að stofna fyrirtæki — farið verður yfir öll grundvallaratriði í stofnun og rekstri fyrirtækja á mannamáli af einhverjum sem hefur gert þetta sjálfur.
ATH: Flest stéttarfélög veita 90–100% styrk fyrir þessu námskeiði!
Engar áhyggjur — á námskeiðinu förum við yfir allt sem þú þarft að vita varðandi stofnun fyrirtækja og gerum ferilinn bæði einfaldari og auðskiljanlegri.
Ég man ennþá hvað mér fannst erfitt að stofna mitt fyrsta fyrirtæki — langir dagar og svefnlausar nætur. Ég vildi óska þess að ég hefði haft einhvern til að leiðbeina mér í gegnum þennan feril. Það er ástæðan fyrir því að ég fór sjálfur að kenna stofnun fyrirtækja. Á þessu námskeiði mun ég sýna þér með einföldum hætti að það er bæði auðvelt og gefandi að stofna eigið fyrirtæki.
Rúsínan í pulsuendanum er svo síðasti hluti námskeiðsins sem kallast Góð ráð og algeng mistök. Þar fer ég yfir ómetanlegan lærdóm sem ég hef lært síðustu árin eftir að hafa starfað með hundruði frumkvöðla. Þessi hluti námskeiðsins mun spara þér tíma og pening á meðan þú byggir upp reksturinn þinn.
Haukur býr yfir tveggja áratuga reynslu í frumkvöðlastarfi og hefur sjálfur stofnað 7 fyrirtæki í tveimur heimsálfum og þremur löndum.
Hann hefur verið virkur þátttakandi í að byggja upp frumkvöðlaumhverfið á Íslandi og kenndi sitt fyrsta námskeið í stofnun fyrirtækja árið 2009 — upphaflega sem frítt námskeið til að hjálpa þeim sem höfðu farið illa út úr efnahagshruninu 2008.
Síðan þá hefur hann kennt, leiðbeint og mentorað hundruð frumkvöðla bæði hér heima og í Norður-Ameríku, auk þess sem hann hefur verið virkur fyrirlesari og greinahöfundur á Frumkvöðlar.is.
Ein af helstu ástæðunum fyrir því að ég elska fyrirtækjarekstur er sú að hann gefur þér tækifæri á að skapa lífið sem þig dreymir um.
Dreymir þig um að verða rík(ur)? ferðast um heiminn? vinna heiman frá þér? hafa meiri tíma með fjölskyldunni? hafa meiri sveigjanleika í vinnutímum? starfa við það sem þú hefur ástríðu fyrir?
Þú getur búið til rekstur sem hjálpar þér að láta þann draum verða að veruleika. Ef þú ferð rétt að strax frá fyrsta degi og ert með skýra sýn þá geturðu búið til rekstur sem gerir þá sýn að veruleika.
Við höfum öll mismunandi ástæður fyrir því að fara út í fyrirtækjarekstur en við eigum það öll sameiginlegt að ef við framkvæmum þetta rétt og náum árangri þá mun líf okkar og líf fjölskyldna okkar verða betra fyrir vikið.
Ekki sóa tíma þínum, orku og lífi í að vinna starf sem þú hefur enga ástríðu fyrir.
Taktu skrefið og skapaðu það líf sem þig dreymir um!
„Þetta námskeið gaf mér orku og vilja í að framkvæma draumana mína sem tengjast rekstri, ég fékk fullt af góðum ráðum sem ég bjóst ekki við, mæli óendalega með þessu námskeiði þar sem það er farið mjög vandlega og skýrt yfir hluti."
„Alveg hreint ótrúlegt magnið af upplýsingum sem koma fram á þessu stutta námskeiði. Ég þekkti engan í fyrirtækjarekstri en núna líður mér eins og ég viti allt sem ég þarf að vita. Námskeiðið gerði það að stofna fyrirtæki að raunhæfu markmiði."
„Haukur er frábær kennari, einlægur, sem gat útskýrt hvernig allt fer fram á „mannamáli". Lærði heilmikið og frábært að fá gesti líka í heimsókn til að læra af þeim. Mæli 100% með."
„Ég eindregið mæli með þessu námskeiði. Mér finnst Haukur fara vel í efnið og útskýra það á mjög skiljanlegan og rólegan máta. Hann tekur fyrir öll viðeigandi málefni og veit hvað á að kafa djúpt í."
„Þetta er fínt námskeið sem gefur góða mynd af því hverju þarf að huga að í upphafi atvinnnurekstrar. Að mínu mati er þetta góð fjárfesting fyrir þá sem eru að hugsa um að stofna eigið fyrirtæki."
„Þetta er algjörlega frábært námskeið! Staðfestir flest sem ég hef verið að hugsa og kemur líka með fleiri góða punkta sem ég hafði ekki pælt í."
Áður en námskeiðið sjálft hefst munum við aðeins fara yfir dagskrá dagsins, kynnast hvort öðru og ræða aðeins um þau fyrirtæki og hugmyndir sem við erum að vinna að.
Þessi hluti felst í því að átta sig á afhverju þú ert að þessu og hvernig þú vilt byggja upp fyrirtækið þitt. Þetta er grunnurinn að því að ná raunverulegum árangri í rekstri — og það sem margir reyndir frumkvöðlar vildu óska að þeir hefðu vitað frá byrjun.
Hvernig er hægt að sannreyna viðskiptahugmyndina og vita hvort þú sért á réttri leið. Það eru ýmsar leiðir til að átta sig á því hvort það sé eitthvað vit í hugmyndinni — stundum er betra að athuga það áður en lengra er farið.
Við förum í gegnum allan ferilinn við að stofna einkahlutafélag frá A–Ö, skref fyrir skref. Þú munt aldrei aftur vera í vafa um hvernig þú stofnar fyrirtæki.
Helstu atriði varðandi rekstur fyrirtækja — virðisaukaskattur, launatengd gjöld, launagreiðslur, góðar bókhaldsvenjur og margt fleira.
Hádegismatur er 45 mínútur og er ekki innifalin í námskeiðinu. Þátttakendur geta t.d. borðað saman á VOX eða fjölda veitingastaða í nágrenni og kynnst þannig betur.
Allar helstu leiðir til að fjármagna fyrirtæki — kostir og gallar hverrar aðferðar. Þú munt átta þig á hvaða leiðir þú vilt skoða nánar og hvaða leiðir betra væri að sleppa.
Góð ráð fyrir minni fyrirtæki um hvernig best er að byrja og hvar peningum er best varið. Vefsíðugerð, samfélagsmiðlar, sölumál o.fl.
Stutt kynning á því hvernig fyrirtæki geta nýtt gervigreind í fyrirtækjarekstri og sparað sér mikinn tíma og kostnað.
Rúsínan í pulsuendanum. Ómetanlegir punktar sem geta sparað mörgum mikinn tíma og pening. Stundum er gott að læra af mistökum annarra svo maður þurfi ekki að gera þau sjálf(ur).
Á hvert námskeið fæ ég í heimsókn íslenskan frumkvöðul sem deilir sögu sinni með hópnum og hópurinn getur spurt hann/hana spurninga. Ég reyni eftir fremsta megni að velja sérstaklega frumkvöðla sem væru áhugaverðir fyrir hvern hóp.
Við fáum góðan gest á námskeiðið sem starfar sem bókari og getur deilt betur með ykkur hvernig eigi að starfa með bókhaldsþjónustum. Bókarinn mun svara spurningum frá hópnum og reyna aðstoða eftir fremsta megni.
Átta íslenskir frumkvöðlar deila einlægum reynslusögum sínum af því að stofna og byggja upp fyrirtæki. Myndbandsupptökurnar eru alls 4 klukkustundir og hvergi annars staðar fáanlegar.
Laugardaginn 13. júní · kl. 9:00–15:00 · Hilton Nordica Reykjavík
Skráðu þig núna
Námskeiðið fer fram í þægilegum fundarsal á Hilton Nordica Reykjavík. Hópurinn er aldrei stærri en 20 manns — nóg pláss til að spyrja spurninga og spjalla við aðra þátttakendur.
Dagsetning: Laugardaginn 13. júní
Tími: Kl. 9:00–15:00
Staður: Hilton Nordica Reykjavík, Suðurlandsbraut 2
Skráningin þín er móttekin. Þú færð staðfestingu og greiðsluupplýsingar í tölvupósti innan skamms. Hlökkum til að sjá þig 13. júní á Hilton Nordica.
Ef þér finnst eitthvað vera óskýrt varðandi námskeiðið eða ef þú hefur einhverjar frekari spurningar þá endilega sendu okkur tölvupóst á info@frumkvodlar.is og við reynum að svara þér eins fljótt og við getum.